MFH # A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V W X Y Z
Undir skyggðarhaldi
Artist Andavald
Length 11:23

Undir skyggðarhaldi

0:00
0:00

Lyrics

Alvaldur,
alvaldur konungur neðra.
Upphimins sólir, þig tignandi
fara sinna ferða.
Himnanna tjöld, geimanna fjöld,
lofa þig lávarður neðra
Á himnum í heiði ofar
þig hrapandi stjörnumergðin lofar.
Hlekkjaðir vér erum, undan andavaldi.
Við hettu þinni klæðumst þjáðir,
undir skyggðarhaldi.
Hryggðarsporin, herra minn
í neðraríki leið mig inn.
Ég sá himnana rifna;
úr gapandi tóminu
teygðu sig angar, fálmarar
í hinum ónáttúrulegustu litum
sem engin hafa nöfn.
Þar við fallinna englaskarans
fölsku sigursöngva,
þér hörpur óma í hverfulum
feigðarboðahljóma.
Gegnum svarta sali
til hins neðra,
sálir þessar munu aldrei
til sinna feðra safnast.